
Nýkomin heim frá Svíþjóð þar sem ferðin aðallega snerist um rækjusölu. Þegar heim var komið var heldur betur veturinn genginn í garð! En þrátt fyrir aflýstum skólum og ferðum var eiginlega bara huggulegt í óveðrinu. Nóg af rafmagni og heitu vatni léttir lífið og húsið hlýtt og kósý. Nokkrir hestar eru komnir af stað í þjálfun og það verður gaman að ríða út núna. Og já, ef ekki, getum við þjálfað innandýra.
Stóðið virðist hafa tekið þessu öllu með ró og hafa það gott austan við skemmuna.
- Calm after the storm.
- Strengur og tunglið
- Fyrstu hestarnir komnir af stað í þjálfun.
- Vetrarlegt!
- Nokkrir forvitnir.
- Nágrannarnir taka hrossin sín heim fyrir vetrarfóðrun.
Kósý vetur!